Tveir leikir voru í Pepsi-deild karla í kvöld. Þeir áttu upprunalega að vera fjórir en tveimur þeirra var frestað vegna veðurs.
FH vildi fá frestun á leik sínum við KA, en Akureyringarnir tóku það ekki mál. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður.
FH vildi fá frestun á leik sínum við KA, en Akureyringarnir tóku það ekki mál. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður.
Fyrri hálfleikurinn var frekar tíðindalítill en strax í upphafi seinni hálfleiksins dró til tíðinda þegar FH-ingar fengu vítaspyrnu. Úr vítaspyrnunni skoraði Steven Lennon af öryggi.
Er að horfa á leik FH og KA. Þó að það hefði verið rosa töff og hart að spila fullt af fótboltaleikjum í þessu veðri þá eru þessar aðstæður ekki skemmtilegar áhorfs. Fagna því að hinir leikirnir voru færðir. #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) May 17, 2018
Þegar rétt rúmar 20 mínútur voru eftir bætti Færeyingurinn hæfileikaríki Brandur Olsen við öðru marki og FH komið í 2-0. Elfar Árni Aðalsteinsson minnkaði muninn á 80. mínútu en fimm mínútum síðar kláraði Lennon leikinn fyrir FH með sínu öðru marki, 3-1.
FH komið upp að hlið Breiðabliks, með níu stig eftir fjóra leiki. Blikar leika sinn fjórða leik á morgun gegn KR. KA hefur fjögur stig og er á þessari stundu í áttunda sæti.
Inn í Egilshöllinni sigruðu sprækir Fylkismenn ÍBV.
Fylkir komst yfir á fimmtu mínútu þegar Jonathan Glenn skoraði eftir kjánaleg mistök hjá Derby Carrillo í marki ÍBV. „Hrikaleg mistök hjá Derby í markinu!! Misheppnuð hreinsun sem fer í bakið á Glenn og boltinn fer beint á Ragnar Braga á hægri kantinum sem sendir boltann fyrir og Glenn kláraði í autt markið," skrifaði Elvar Magnússon í beinni textalýsingu.
Staðan var 1-0 alveg fram á 89. mínútu; þá kom Hákon Ingi Jónsson Fylki í 2-0. Sigurður Arnar Magnússon minnkaði muninn fyrir ÍBV en það var of lítið, of seint.
Lokatölur 2-1 fyrir Fylki, sem er komið upp í þriðja sæti með sjö stig. ÍBV er á botni deildarinnar með eitt stig.
FH 3 - 1 KA
1-0 Steven Lennon ('48 , víti)
2-0 Brandur Hendriksson Olsen ('69 )
2-1 Elfar Árni Aðalsteinsson ('80 )
3-1 Steven Lennon ('85 )
Lestu nánar um leikinn
Fylkir 1 - 0 ÍBV
1-0 Jonathan Ricardo Glenn ('5 )
Lestu nánar um leikinn
LEIK LOKIÐ! Þægilegur 2-1 sigur á grönnum okkar í @IBVsport ! Takk fyrir leikinn!#FylkirStoltirAlltaf 🧡🧡🧡
— Fylkir FC (@fylkirmfl) May 17, 2018
Ég ætla að biðja framherjana mína aðeins um að róa sig pic.twitter.com/kmeWmUDfO1
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) May 17, 2018
Athugasemdir