Nú hafa byrjunarliðin í leik Tahíti og Nígeríu verið tilkynnt. Liðin mætast á eftir í sínum fyrsta leik í Álfukeppninni, en leikið er í B-riðli.
Tahíti er í 138. sæti styrkleikalista FIFA en spilar þó á mótinu sem sigurvegar í Eyjaálfukeppninni á síðasta ári.
Nígería er fyrirfram talið langtum líklegra til sigurs í dag, en ljóst er að leikmenn Tahíti, sem allir nema einn eru áhugamenn í greininni, munu leggja allt sitt í leiki sína í Álfukeppnini.
Byrjunarliðin má sjá hér að neðan, en leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV íþróttir.
Byrjunarlið Tahíti: Samin, A Tehau, Vahirua, Ludivion, Caroine, Bourebare, Vallar , Chong Hue, Aitamai, J Tehau, Simon.
Byrjunarlið Nígeríu: Enyeama , Oboabona, Echiejile, Ambrose, Musa, Mikel, Ogude, Ujah, Mba, Oduamadi, Omeruo



