Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Álfukeppnin: Leikur dagsins - Tahítí á stóra sviðinu
Ansi athyglisverður leikur fer fram í Álfukeppninni í kvöld þegar Nígería mætir Tahítí í B-riðli.

Tahítí komst í Álfukeppnina á ævintýranlegan hátt eftir að hafa unnið Eyjaálfukeppnina í fyrra, nánast allir leikmenn liðsins eru einungis áhugamenn sem spila í heimalandinu.

Aðeins einn atvinnumaður er í hópnum hjá Tahítí en það er Marama Vahirua, leikmaður Nancy í Frakklandi.

Tahítí er í 138. sæti á styrkleikalista FIFA og er því ekki hægt að búast við miklu frá liðinu í keppninni en leikmennirnir munu vissulega njóta þess að spila á mótinu.

Nígería má alls ekki misstíga sig gegn Tahítí en liðið mun væntanlega berjast við Úrúgvæ um annað sæti riðilsins, en Úrúgvæ tapaði fyrir Spáni í gær.

Í kvöld:
19:00 Tahítí - Nígería (Beint á RÚV íþróttir)
Slapp
banner