Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 16:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Bjarni Guðjóns: Þetta þarf ekki að vera svona ljótt
Bjarni Guðjónsson er ýmsu vanur.
Bjarni Guðjónsson er ýmsu vanur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fingur á lofti í Krikanum.
Fingur á lofti í Krikanum.
Mynd: Eva Björk Ægisdóttir
Framkoma áhorfenda á fótboltaleikjum hefur verið nokkuð í umræðunni í sumar. Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, hefur oft fengið vænan skammt af dónalegum köllum úr stúkunni en hann var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardag.

„Þetta er eitthvað sem þarf að íhuga, hvernig við látum á pöllunumi. Það hefur nákvæmlega engin áhrif á mig hvað er öskrað inn á völlinn. Fyrr í sumar hef ég lent í köllum en sem stuðningsmenn þurfum við að íhuga hvernig við hegðum okkur," sagði Bjarni.

„Það er ekki bara fullorðið fólk í stúkunni heldur fullt af krökkum og þau læra það sem fyrir þeim er haft. Við getum ekki borið okkur saman við það sem gerist á stórum völlum þar sem eru kannski 80 þúsund manns á vellinum og þú veist ekki hver er að öskra. Hér líturðu upp í stúku, sérð hver öskrar og veist nánast hvar hann á heima."

„Eins og ég sagði hefur þetta engin áhrif á mig, ef eitthvað er hvetur þetta mig áfram frekar en hitt. Það hlýtur að vera hægt að finna einhverja leið þar sem þetta þarf ekki að vera svona ljótt."

Fyrr í sumar bað Silfurskeiðin, stuðningssveit Stjörnunnar, Bjarna afsökunar vegna söngva um hann. Bjarni viðurkennir að hafa áhyggjur af fjölskyldu sinni í stúkunni þegar einhver leiðindi eru í gangi.

„Það er aftur á móti vera fyrir þau. Þau eru orðin öllu vön en heilt yfir, fyrir þessa fallegu íþrótt, eigum við ekki að vera að velta okkur í þessu drullumalli. Það heyrist voðalega mikið sem kemur úr stúkunni."

„Við verðum að finna leið því krakkarnir okkar alast upp í þessu umhverfi. Svo verða þau fullorðin, mæta á völlinn og taka sennilega eitt skref í viðbót. Þetta er fjölskylduskemmtun og við viljum að sem flestir geti mætt," segir Bjarni Guðjónsson.

Sjá einnig:
Upptaka af viðtalinu við Bjarna
Slapp
banner
banner
banner