Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Elyounoussi á leið til Hoffenheim
Norski sóknarmaðurinn Tarik Elyounoussi er kominn til Hoffenheim frá norska félaginu Rosenborg.

Elyounoussi er 25 ára gamall og er kaupverðið óuppgefið, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við þýska félagið.

,,Tarik er mjög hæfileikaríkur og hraustur og getur verið notaður í mörgum stöðum framarlega á vellinum," sagði Alexander Rosen, yfirmaður knattspyrnumála félagsins.

,,Hann passar inn í leikkerfið okkar og við erum mjög ánægðir með að vera búnir að fá hann til liðs við okkur."

Elyounoussi á 21 landsleik að baki fyrir norksa landsliðið og kom til Rosenborg í fyrra og skoraði 9 mörk í 31 leik.

Elyounoussi hafði leikið fyrir Heerenveen, Lillestrom og Fredrikstad áður en hann var keyptur til Rosenborg.
Slapp
banner
banner
banner