Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 18:30
Daníel Freyr Jónsson
Fyrsta byrjunarlið Ferguson til sölu
Fyrsta opinberlega byrjunarlið Sir Alex Ferguson hjá Manchester United verður fljótlega selt á uppboði.

Um er að ræða blað þar sem Ferguson skrifaði á sitt fyrsta byrjunarlið sem stjóri United, en það var leikur gegn Oxford árið 1986.

Núverandi eigandi blaðsins er stuðningsmaður Oxford, en hann fékk það gefins frá þáverandi leikmanni Oxford sem lék leikinn.

Lið United var langt frá því að vera stjörnum prýtt á þessum tíma, en sjá má liðið hér að neðan.

Byrjunarlið Manchester United gegn Oxford 8. nóvember 1986: Chris Turner, Mike Duxbury, Arthur Albiston, Kevin Moran, Paul McGrath, Graeme Hogg, Clayton Blackmore, Remi Moses, Frank Stapleton, Peter Davenport, Peter Barnes.
Slapp
banner