Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 11:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Higuain og Nani til Arsenal?
Powerade
Slúðurpakkinn tekur ekkert frí á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Njótið slúðurpakkans.



PSG mun reyna að fá Andre Villas-Boas sem stjóra en félagið ætlar einnig að bjóða 85 milljónir punda í Gareth Bale og krækja í David Luiz varnarmann Chelsea. (Daily Mirror)

Chelsea, Manchester City og Manchester United munu ekki fá pólska framherjann Robert Lewandowski því hann ætlar að klára samning sinn hjá Dortmund og ganga síðan til liðs við FC Bayern næsta sumar. (DailY star)

Arsenal mun hafa betur gegn Juventus í baráttunni um Gonzalo Higuain en hann mun koma til félagsins á 25,5 milljónir punda. (Metro)

Luis Suarez hefur endurtekið þá ósk sína að hann vilji fara frá Liverpool. (Daily Mirror)

AC Milan vonast til að selja Robinho til Santos í vikunni til að fjármagna kaup á Carlos Tevez. (Daily Mirror)

Barcelona ætlar að bjóða 9,5 milljónir punda í Laurent Koscielny varnarmann Arsenal en félagið hefur hætt við að fá Vincent Kompany, Thiago Silva og David Luiz. (Marca)

Arsenal vill fá Nani en hann á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United. Galatasaray og Monaco hafa einnig sýnt Portúgalanum áhuga. (Metro)

Southampton hefur boðið 7,6 milljónir punda í Ever Banega miðjumann Valencia og þá hefur félagið einnig áhuga á Gary Hooper framherja Celtic. (Daily Mirror)

Aston Villa er að kaupa vinstri bakvörðinn Antonio Luna frá Sevilla á 1,5 milljón punda. (Daily Mail)

West Ham hefur áhuga á Ludovic Sane miðjumanni Bordeaux. (L'Equipe)

Massimo Moratti, forseti Inter, segir að Tottenham hafi áhuga á Fredy Guarin. (Sporting Life)

Newcastle er að krækja í Olivier Kemen, 17 ára framherja Metz. (Daily Mail)

Bebe vill yfirgefa herbúðir Manchester United og ganga til liðs við Sporting Lisabon. (Goal.com)

Montpellier hefur áhuga á Djibril Cisse framherja QPR. (L'Equipe)

Hull ætlar að berjast við Newcastle um Darren Bent framherja Aston Villa. (Daily Mirror)
Slapp
banner
banner