Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 14:08
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Lewandowski spilar með Dortmund á næsta tímabili
Robert Lewandowski mun leika áfram með Borussia Dortmund á næsta tímabili.

Pólverjinn vill ganga í raðir FC Bayern en hann á eitt ár eftir af samningi sínum.

Real Madrid, Chelsea og Manchester City hafa einnig verið orðuð við Lewandowski en leikmaðurinn mun klára samning sinn hjá Dortmund.

,,Robert mun pottþétt leika með Borussia Dortmund á næsta tímabili," sagði Hans-Joachim Watzke framkvæmdastjóri Dortmund.

,,Við þurfum öryggi til að geta byrjað að undirbúa næsta tímabil."
Slapp
banner
banner
banner