Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 13:00
Elvar Geir Magnússon
Liverpool tilbúið að virkja klásúlu til að fá Mkhitaryan
Armenski miðjumaðurinn Henrikh Mkhitaryan er sagður vera með klásúlu í samningi sínum við Shaktar Donetsk í Úkraínu. Hægt er að fá hann lausan fyrir 20 milljónir punda.

BBC segir að Liverpool hafi áhuga á að nýta sér þetta en félagið fær samkeppni um þennan 24 ára leikmann.

Mkhitaryan skoraði 25 mörk á liðinu tímabili og hefur auk Liverpool verið orðaður við Juventus og Borussia Dortmund.

Liverpool er í viðræðum við Sunderland um kaup á markverðinum Simon Mignolet. Þegar hefur félagið tryggt sér Kolo Toure og framherjann Iago Aspas fyrir átökin næsta vetur.
Slapp
banner
banner