Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Myndband: Rándýr aukaspyrna í boði Suarez
Álfukeppnin er komin á fulla ferð í Brasilíu og höfum við fengið að sjá frábær tilþrif á fyrstu tveimur dögunum hjá ýmsum stórstjörnum. Neymar skoraði fyrsta mark mótsins sem var einkar glæsilegt og í gær skoraði Andrea Pirlo fallegt mark beint úr aukaspyrnu í sínum 100. landsleik fyrir Ítalíu. Veislan hélt áfram í leik Spánar og Úrúgvæ en þar skoraði Luis Suarez magnað aukaspyrnumark sem sjá má hér að neðan. Markið dugði Úrúgvæ skammt en liðið tapaði 2-1.


Slapp
banner
banner