Enn liggur ekki ljóst fyrir hvort Nani verði áfram í herbúðum Manchester United fyrir næstu leiktíð en hann sjálfur hefur ekki útilokað að vera áfram hjá Englandsmeisturunum.
Portúgalski landsliðsmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum á Old Trafford og hingað til hafa engar viðræður átt sér stað um endurnýjun hans.
Portúgalski landsliðsmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum á Old Trafford og hingað til hafa engar viðræður átt sér stað um endurnýjun hans.
Því hefur verið talið að Manchester United vilji selja leikmanninn í sumar og er Nani sagður opinn fyrir nýjum áskorunum.
Nani hefur verið orðaður við fjölmörg lið í ensku úrvalsdeildinni og víða um Evrópu, en engin ákvörðun hefur verið tekin.
,,Það er ekkert ákveðið varðandi framtíð mína," sagði Nani.
,,Ég er rólegur. Ég er með allt í höndunum. Ég er ekki að segja að ég muni ekki halda áfram hjá Manchester United. Ég mun finna út hvað er mér fyrir bestu."

