Heimild: Sport.libero.it
Guglielmo Acri, sem vinnur sem ráðgjafi í leikmannamálum hjá ítalska B-deildarliðinu Pescara, segir fjölda liða hafa áhuga á miðjumanninum Birki Bjarnasyni og slóvenska landsliðsmanninum, Vladimir Weiss.
Báðir léku sem lánsmenn hjá félaginu á síðasta keppnistímabili en félagið tryggði sér forkaupsrétt á þeim báðum sem hefur nú verið nýttur í báðum tilfellum.
,,Við munum ekki eiga í neinum vandræðum með að selja Weiss eða Birki því okkur hefur borist fjöldi fyrirspurna í þá, jafnt frá Ítalíu og erlendis frá,“ sagði Acri í samtali við ítalska fjölmiðla.
Birkir hefur verið orðaður við fjölmörg félög á síðastliðnum vikum og má þar nefna ítölsku úrvalsdeildarliðin Verona, Livorno og Sassuolo auk rússneska liðsins Lokomotiv Moskvu.
Jim Solbakken, annar umboðsmanna Birkis, tjáði síðan norskum fjölmiðlum í morgun að úrvalsdeildarlið í Englandi og Þýskalandi hefðu bæst í kapphlaupið um leikmanninn.
Pescara greiddi Standard Liege 900 þúsund evrur fyrir landsliðsmanninn en félögin höfðu sæst á þá upphæð síðasta haust.
Forráðamenn Pescara gera sér hins vegar vonir um að selja Birki áfram fyrir töluvert hærri upphæð en núvirði leikmannsins er talið nema á bilinu tveimur til þremur milljónum evra.




