Roberto Soldado, sóknarmaður Valencia, segist vera spenntur fyrir að spila í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur undanfarið verið orðaður við Tottenham.
Þessi 28 ára Spánverji er á óskalista Andre Villas-Boas, stjóra Tottenham, sem er á eftir öflugum sóknarmanni í fremstu víglínuna en Alvaro Negredo, framherji Sevilla, hefur einnig verið nefndur til sögunnar.

Þrátt fyrir mikinn áhuga á Soldado er Valencia staðráðið í að halda markaskorara sínum fyrir næstu leiktíð en Soldado hefur verið hjá Valencia í þrjú ár og skorað 82 mörk.
Valencia gæti þó hugsanlega þurft að neyðast til að selja Soldado vegna skulda en sjálfur segist hann vera opinn fyrir félagaskiptum til Englands þrátt fyrir að vera ánægður hjá Valencia.
,,Ég er mjög ánægður hjá Valencia en ég mun ekki loka dyrunum á neitt. Ég hef séð kollega mína yfirgefa Spán og staðið sig vel erlendis," sagði Soldado.
,,Enska úrvalsdeildin og Bundesligan eru spennandi kostir fyrir hvern leikmann og við myndum allir njóta þess að spila þar."