Heimild: Yahoo
Luis Suarez er mjög ánægður með að hafa jafnað markamet Diego Forlan fyrir úrúgvæska landsliðið, en hann jafnaði það þegar hann skoraði glæsilegt aukaspyrnumark í tapleik gegn Spáni í Álfukeppninni.
Suarez skoraði markið þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og minnkaði þá stöðuna í 2-1, en Spánverjar héldu út og verðskulduðu sigurinn.
Suarez skoraði markið þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og minnkaði þá stöðuna í 2-1, en Spánverjar héldu út og verðskulduðu sigurinn.
Báðir eru nú búnir að skora 33 mörk fyrir Úrúgvæ, Forlan í 99 leikjum en Suarez í aðeins 65 leikjum.
,,Það er mikill heiður að vera búinn að skora jafn mörg mörk og Diego Forlan, sérstaklega miðað við allt sem hann hefur gert fyrir landsliðið," sagði Suarez við fréttamenn.
,,Þetta er mjög gott fyrir mig persónulega, en núna erum við einbeittir að því að standa okkur betur sem liðsheild og ná jákvæðum úrslitum í þessari keppni (Álfukeppninni)."

