Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 18:49
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Gunnar Heiðar með mark og stoðsendingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Freyr Skúlason og Gunnar Heiðar Þorvaldsson komu við sögu í sænska boltanum í dag.

Ari Freyr lék allan leikinn er Sundsvall tapaði fyrir Assyriska FF í mikilvægum leik í efri hluta fyrstu deildarinnar.

Sundsvall hefði komist í annað sæti deildarinnar með sigri en liðið var búið að vinna fjóra leiki í röð fyrir tapið í dag.

Gunnar Heiðar skoraði þá og átti stoðsendingu í jafnteflisleik gegn Kalmar í efstu deild þar sem Norrköping er um miðja deild með fimmtán stig eftir tólf leiki.

Kalmar 2 - 2 Norrköping
1-0 Maans Soderqvist ('40)
1-1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('59)
1-2 Christopher Telo ('63)
2-2 Melker Hallberg ('79)
Slapp
banner