Chelsea er talið vera enn á eftir Xabi Alonso, miðjumanni Real Madrid, og samkvæmt Daily Star er leikmaðurinn spenntur fyrir því að fylgja Jose Mourinho á Brúnna.
Mourinho er hættur með Real Madrid og hefur verið ráðinn nýr stjóri Chelsea.
Mourinho er hættur með Real Madrid og hefur verið ráðinn nýr stjóri Chelsea.
Samningur Alonso við Real Madrid rennur út á næsta ári og hefur leikmaðurinn ekki í hyggju að framlengja við félagið.
Þessi 31 árs leikmaður var orðaður við endurkomu til Liverpool fyrr á árinu en nú er talið að Chelsea hafi bæst við í kapphlaupið þar sem Mourinho er mikill aðdáandi hans.
Alonso verður þó fjarri góðu gamni þar til í október eftir að hafa farið í aðgerð á baki.



