Króatía sigraði Nígeríu 2-0 í fyrsta leik liðanna á HM í Rússlandi. Fyrra mark Króata var sjálfsmark. Þar með hafa þrjú síðustu sjálfsmörk á HM verið á kostnað Afríkuþjóða.
Tvö þessara marka hafa komið í ár en Íran vann Marokkó 1-0 með sjálfsmarki í uppbótartíma.
The last three own goals at the #WorldCup have all been scored by African nations:
— Squawka Football (@Squawka) June 16, 2018
🇳🇬 Yobo (2014)
🇲🇦 Bouhaddouz (2018)
🇳🇬 Etebo (2018)
The last two goals Nigeria have conceded at the tournament have both been own goals. pic.twitter.com/T7dZF5ISAr
Þó að Króatar hafði leitt í hálfleik með einu marki gegn engu þá áttu þeir ekki skot á markið fyrr en Modric skoraði seinna mark þeirra úr víti.
Það var 10. skot Króata í leiknum og ekki hafði enn reynt á Francis Uzoho, í marki Nígeríu, fyrir það.
Modric's penalty was #CRO's first shot on target in the game and their 10th shot overall.
— Squawka Football (@Squawka) June 16, 2018
Worth the wait. 🎯 pic.twitter.com/GoZ3MV3RVH
Athugasemdir