Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 17. júní 2018 10:41
Elvar Geir Magnússon
Gummi Hreiðars: Hornið sem Messi notar þegar hann er stressaður
Icelandair
Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari.
Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hann var dóminerandi og yfirvegaður í þessum leik," segir Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari um frammistöðu Hannesar í jafnteflinu gegn Argentínu í gær.

Hannes var valinn opinber maður leiksins af FIFA og fékk að auki hæstu einkunn hjá öllum fjölmiðlum.

Hannes varði vítaspyrnu frá Lionel Messi í leiknum en á fréttamannafundi eftir hann sagðist Breiðhyltingurinn hafa horft á margar vítaspyrnur hjá Messi. Guðmundur segir að þetta sé hornið sem Messi skýtur í þegar mikið liggur við.

„Vítið var gríðarlega vel gert og vel útfært af Hannesar hálfu. Þetta er það horn sem Messi notar þegar hann er stressaður og þarf að skora. Öll vinna í kringum það var góð hjá okkur öllum. Skömmu eftir vítið tók hann svo aðra frábæra markvörslu," segir Guðmundur.

Það er gríðarlegt afrek að vera valinn maður leiksins í leik á HM í fótbolta.

„Sérstaklega þegar Messi er á vellinum, þá stækkar það enn meira," segir Guðmundur en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner