Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. júlí 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal-þema í brúðkaupi í Kosóvó - Eiginkonan sátt
,,Án Arsenal hefur líf mitt engan tilgang"
Allir í Arsenal-treyjum.
Allir í Arsenal-treyjum.
Mynd: Twitter
Það eru ekki margir sem halda eins mikið upp á enska úrvalsdeildarliðið Arsenal og Kaltrim Agushaj frá Kosóvó.

Kaltrim giftist Edisona Agushaj við hátíðlega athöfn um helgina, en vinir Kaltrim komu honum á óvart.

Vinir hans og fjölskylda klæddust Arsenal treyjum, en eiginkna Kaltrim er einnig stuðningsmaður Lundúnarliðsins og því fór allt vel.

„Þetta var hvatvís hugmynd hjá vinum mínum að hafa Arsenal-þema í brúðkaupinu," sagði Kaltrim við Goal.com.

„Þetta var óvænt ánægja og ég er glaður vegna þess að á endanum fóru allir heim glaðir. Ég verið stuðningsmaður Arsenal í 17 ár, frá árinu 2000. Án Arsenal hefur líf mitt engan tilgang."

„Viðbrögðin voru frekar skrýtin hjá konunni minni þar sem hún
bjóst við ekki þessu. Hún er sem betur fer stuðningsmaður Arsenal líka,"
sagði Kaltrim léttur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner