Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 17. júlí 2017 16:07
Magnús Már Einarsson
Cuco Martina í Everton (Staðfest)
Mynd: Twitter
Everton hefur fengið varnarmanninn Cuco Martina í sínar raðir frá Southampton.

Samningur Martina hjá Southampton rann út fyrr í sumar og þessi 27 ára gamli leikmaður hefur nú gert þriggja ára samning við Everton.

Martina er hægri bakvörður en hann er fyrirliði landsliðs Curacao.

Ronald Koeman, stjóri Everton, er mikill aðdáandi Martina en hann fékk leikmanninn til Southampton á sínum tíma.

„Ég þekki stjórann frá tíma mínum hjá Southampton svo ég veit hvað hann vill og hann veit hvað ég get gert," sagði Martina.
Athugasemdir
banner
banner
banner