Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 17. júlí 2017 11:24
Magnús Már Einarsson
Heimild: 433.is 
Elmar að semja við félag í Tyrklandi
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Theodór Elmar Bjarnason er að ganga í raðir Elzagispor í Tyrklandi en þetta segja heimildir 433.is.

Elmar yfirgaf AGF í Danmörku á dögunum en mörg félög sýndu honum áhuga í kjölfarið.

Félög frá Ástralíu, Englandi, Grikklandi, Hvíta-Rússlandi og Portúgal hafa sýnt Elmari áhuga.

„Ég á eftir að gera þetta upp við mig. Það þarf að taka svo mikið inn í myndina þegar maður er kominn með fjölskyldu og barn. Ég er að vega og meta þetta og Víkingarnir eru svo ljúfir að leyfa mér að æfa hér til að halda mér í formi," sagði Elmar við Fótbolta.net fyrr í mánuðinum en hann var þá að æfa með Víkingi R.

Þessi þrítugi leikmaður er nú að semja við Elzagispor í næst efstu deild í Tyrklandi samkvæmt frétt 433..is.
Athugasemdir
banner
banner
banner