Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 17. júlí 2017 20:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mirror: Gylfi fær sama pakka og Wayne Rooney
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Í dag var greint frá því að Leicester væri reiðbúið að borga Gylfa Þór Sigurðssyni hærri laun en Everton. Daily Mail greindi frá þessu, en nú segir Mirror aðra sögu.

Samkvæmt enska götublaðinu Mirror mun Gylfi nánast tvöfalda laun sín ef hann fer til Everton.

Hann mun fá sama launapakka og Wayne Rooney, sem gekk í raðir Everton á dögunum. Rooney er víst með 150 þúsund pund á viku, en það eru rúmar 20 milljónir íslenskar krónur.

Gylfi er í augnablikinu með 80 þúsund pund í vikulaun hjá Swansea.

Það kemur væntanlega í ljós á næstu dögum hvar íslenski landsliðsmaðurinn endar en Gylfi fór ekki með Swansea í æfingaferð til Bandaríkjanna fyrir helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner