Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 17. júlí 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Redknapp hefur áhuga á Cole, Keane og Downing
Ashley Cole og Robbie Keane eru á innkaupalistanum.
Ashley Cole og Robbie Keane eru á innkaupalistanum.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Birmingham City, hefur staðfest áhuga á þremur reynsluboltum. Leikmennirnir sem hann er áhugasamur um eru Ashley Cole, Robbie Keane og Stewart Downing.

Redknapp vonast til þess að þessir leikmenn muni hjálpa sér að koma Birmingham í hóp bestu liða Championship-deildarinnar, en Birmingham var nálægt því að falla úr deildinni á síðasta tímabili.

Cole og Keane hafa að undanförnu leikið í MLS-deildinni á meðan Downing var síðast á mála hjá Middlesbrough.

„Ashley Cole var að mínu mati besti vinstri bakvörður heims fyrir nokkrum árum. Hann var magnaður leikmaður," sagði Redknapp.

„Hann er í Ameríku. Ég veit ekki hver plönin hjá honum eru, en ef við getum fengið hann, þá hef ég áhuga."

„Stewart Downing og Robbie Keane eru líka frábærir fótboltamenn og ég hef áhuga á þeim öllum. Ég á samt eftir að tala við þá og þangað til ég geri það, þá veit ég ekki."
Athugasemdir
banner
banner