Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. júlí 2017 23:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ronaldo er svo ánægður hjá Real Madrid"
Ronaldo brosir.
Ronaldo brosir.
Mynd: Getty Images
Fernando Morientes segir að það sé allt í góðu á milli Real Madrid og Cristiano Ronaldo. Morientes, sem er fyrrum leikmaður liðsins, segir að Ronaldo sé gríðarlega ánægður í Madrídarborg.

Ýmsir fjölmiðlar sögðu frá því í júní að Ronaldo væri ósáttur við að vera ásakaður um skattsvik og vildi fara frá Spáni.

Morientes, sem vann þrjá Meistaradeildartitla með Real Madrid, er fullviss um það að Ronaldo verði um kyrrt í Madríd.

„Ég hef ekki heyrt Cristiano segja að hann vilji fara," sagði Morientes. „Ég veit alveg hvernig þetta virkar. Eftir öll tímabil eru margar sögusagnir í gangi og bestu leikmennirnir eru orðaðir hingað og þangað. Ronaldo er einn þeirra."

„Ég er rólegur vegna þess að hann hefur ekki talað. Við munum sjá til þegar hann talar," sagði Morientes.

„Ég er viss um að Ronaldo sé svo ánægður hjá Real Madrid, og Real Madrid er ánægt með Ronaldo."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner