WBA hefur fengið varnarmanninn Ahmed Hegazi á láni frá Al Ahly í Egyptalandi.
Hinn 26 ára gamli Ahmed verður á láni hjá WBA á næsta tímabili en félagið getur síðan keypt hann í kjölfarið.
Hegazi lék með Fiorentina frá 2012 til 2015 en meiðsli settu strik í reikninginn þar.
Hinn 26 ára gamli Ahmed verður á láni hjá WBA á næsta tímabili en félagið getur síðan keypt hann í kjölfarið.
Hegazi lék með Fiorentina frá 2012 til 2015 en meiðsli settu strik í reikninginn þar.
„Hann er góð viðbót við hópinn. Hann á góðan feril að baki þar sem hann hefur spilað með nokkrum góðum félögum," sagði Tony Pulis stjóri WBA.
Hegazi var valinn í úrvalslið mótsins í Afríkukeppninni fyrr á þessu ári en Egyptaland tapaði þar í úrslitum gegn Kamerún.
Athugasemdir