Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var mjög svekktur eftir 2-0 tap gegn Stjörnunni í Pepsi-deild karla í kvöld.
Willum var mjög svekktur með það að vera 1-0 undir í hálfleik.
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn ekki bjóða upp á að vera 1-0 undir. Þetta var steindautt 0-0 jafntefli," sagði Willum.
Willum var mjög svekktur með það að vera 1-0 undir í hálfleik.
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn ekki bjóða upp á að vera 1-0 undir. Þetta var steindautt 0-0 jafntefli," sagði Willum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 KR
„Það hefði breytt miklu fyrir okkur að fara með 0-0 í hálfleik."
„Mér fannst við opna okkur þegar leið á seinni hálfleikinn og við vorum líklegir til að jafna, þurftum að setja orku í það og opna okkur um leið pínulítið. Þeir svara síðan með öðru marki."
Guðmundur Andri Tryggvason, ungur strákur sem er uppalinn í KR, kom inn á þegar 57 mínútur voru búnar af leiknum og var mjög flottur. Willum hefur verið gagnrýndur fyrir að nota hann ekki meira, en Willum var sáttur með Guðmund og hans frammistöðu í kvöld.
„Hann var það jákvæðasta hjá okkur KR-ingum í dag, hann er alltaf að koma betri, betri og betri. Það er kominn meiri stöðugleiki í hann og þá fjölgar mínútunum," sagði Willum.
„Hann var langbestur hjá okkur í dag."
Gengi KR hefur ekki verið gott í sumar og Willum talaði hreint út þegar hann var spurður út í skjálfta hjá félaginu.
„Það væri óeðlilegt ef menn væru sáttir," sagði Willum.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir