Viðar Örn Kjartansson og liðsfélagar hans í Maccabi Tel Aviv gerðu góða ferð til Austurríkis í kvöld.
Ísraelska liðið mætti Rheindorf Altach í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en þetta var fyrri leikur liðanna.
Eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Viðar Örn en markið kom á 67. mínútu. Skoraði hann með góðu skoti.
Liðin mætast aftur eftir viku og kemur þá í ljós hvort að Viðar Örn verði í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í vetur. Tel Aviv er í góðri stöðu.
Markið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir