City hefur sett verðmiða á McAtee - Real til í að bíða eftir Konate og hefur áhuga á Saliba
   þri 17. september 2013 16:58
Fótbolti.net
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Íslenska U19 landsliðið gerði jafntefli gegn Slóvakíu
Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson.
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Strákarnir í U19 gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum á Svíþjóðarmótinu en um er að ræða æfingamót fjögurra þjóða. Leikið var gegn Slóvakíu í dag og lauk leiknum með jafntefli, 1 - 1.

Slóvakar voru heldur sterkari í fyrri hálfleiknum en jafnt var þegar sænski dómarinn flautaði til leikhlés. Það voru svo leikmenn Slóvakíu sem brutu ísinn á 69. mínútu með marki. Allt leit út fyrir að þetta mark dygði til sigurs en á síðustu andartökum leiksins jafnaði Húsvíkingurinn, Ásgeir Sigurgeirsson, metin og þar við sat.

Þar sem leiknum lauk með jafntefli þá var gripið til vítaspyrnukeppni og mun hún gilda ef þjóðirnar verða jafnar að stigum í lok móts. Íslenska liðið hafði betur í henni með fjórum mörkum gegn tveimur.

Jafntefli í fyrsta leik en liðið skipa leikmenn fæddir árið 1996. Næsti leikur liðsins á mótinu er gegn Noregi og fer hann fram á fimmtudaginn. Lokaleikurinn á mótinu verður svo gegn heimamönnum í Svíþjóð á laugardaginn.

Byrjunarliðð Íslands:
Hlynur Örn Hlöðversson (m)
Bjarki Þór Hilmarsson
Aron Þórður Albertsson
Samúel Kári Friðjónsson
Gauti Gautason
Alexander Helgi Sigurðarson
Ásgeir Sigurgeirsson
Max Odin Eggertsson
Eggert Georg Tómasson
Gunnar Logi Gylfason
Kári Pétursson
Athugasemdir