Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 17. september 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Bale: Sýndum úr hverju við erum gerðir
Bale skoraði eitt gegn Basel.
Bale skoraði eitt gegn Basel.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, sóknarmaður Real Madrid, segir að liðið hafi sent skýr skilaboð með 5-1 sigri gegn Basel í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Evrópumeistararnir hafa farið afar rólega af stað í spænsku deildinni og eru einungis með þrjú stig eftir þrjá leiki, en Bale vonar að stórsigur gærkvöldsins hafi rifið liðið í gang.

,,Við vissum að við yrðum að byrja leikinn vel eftir vond úrslit að undanförnu, en við sýndum úr hverju við erum gerðir," sagði Bale, sem skoraði eitt mark í gær.

,,Okkur fannst við þurfa að komast aftur á rétta braut og þetta var góð leið til að gera það."
Athugasemdir
banner
banner
banner