Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mið 17. september 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Joe Cole sagði Hazard að fara til Chelsea
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard segir að Joe Cole hafi átt þátt í því að hann ákvað að ganga í raðir Chelsea sumarið 2012.

Hazard var orðaður við mörg stórlið eftir góða frammistöðu með Lille en þar var hann liðsfélagi Joe Cole sem var í láni frá Liverpool.

,,Hann sagði við mig þegar við vorum hjá Lille 'Þú verður að fara til Chelsea, það er rétt félag fyrir þig.' Ég sagði 'Allt í lagi, Joe, ég fer þangað," sagði Hazard.

Joe Cole spilaði með Chelsea frá 2003 til 2010 við góðan orðstír en hann varð meðal annars þrívegis enskur meistari með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner