Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. september 2014 20:30
Daníel Freyr Jónsson
Mario Mandzukic nefbrotnaði - Á leið í aðgerð
Mario Mandzukic.
Mario Mandzukic.
Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Atletico Madrid hafa gefið það út að framherjinn Mario Mandzukic sé á leið í aðgerð eftir að hafa nefbrotnað.

Mandzukic brotnaði í 3-2 tapi Atletico gegn Olympiakos í Meistaradeildinni í gær, en hann var stöðu hætta við mark Grikkjanna og skoraði glæsilegt skallamark.

Afar ólíklegt er því að Króatinn verði með gegn Celta Vigo um helgina, auk þess sem hann gæti misst af leiknum gegn Almeria í næstu viku.

Enn fremur mun Mandzukic líklega spila með andlitsgrímu næstu vikurnar.
Athugasemdir
banner
banner