Cesare Prandelli, þjálfari Galatasaray, var ánægður með baráttu sinna manna eftir að þeim tókst að næla sér í 1-1 jafntefli gegn Anderlecht.
Flestir bjuggust við sigri Galatasaray, sem var þó á leið að tapa leiknum þar til Burak Yilmaz jafnaði í uppbótartíma, Prandelli til ánægju.
Flestir bjuggust við sigri Galatasaray, sem var þó á leið að tapa leiknum þar til Burak Yilmaz jafnaði í uppbótartíma, Prandelli til ánægju.
,,Þetta var erfiður leikur, en við misstum aldrei trúna," sagði þessi fyrrum landsliðsþjálfari Ítalíu.
,,Við börðumst þar til í lokin. Markið þeirra var áfall en við gáfumst ekki upp og ég hrósaði leikmönnunum í klefanum eftir leik."
Athugasemdir