Wayne Rooney segir að hann sé ótrúlega þakklátur fyrir þann þátt sem Sir Alex Ferguson á í þróun ferils síns. Samband þessara tveggja manna var ansi misjafnt meðan Sir Alex var við stjórnvölinn en nú er allt gott milli þeirra.
„Hann var gríðarlega mikilvægur og ég er þakklátur fyrir þá trú sem hann hafði á mér þegar hann fékk mig frá Everton," segir Rooney.
„Það var frábær tilfinning að koma til United. Sir Alex er besti knattspyrnustjóri sögunnar. Hann kom auga á mína hæfileika og fékk mig til félagsins sem var mikill heiður."
„Hann hjálpaði mér mikið eins og hann hjálpaði okkur öllum. Hann gerði unga leikmenn að sigurvegurum."
Athugasemdir