Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. september 2014 18:28
Magnús Már Einarsson
Þóra skoraði í kveðjuleiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þóra Björg Helgadóttir, markvörður, skoraði í kveðjuleik sínum með íslenska landsliðinu.

Ísland er að leika við Serbíu í síðasta leiknum í undankeppni HM.

Ísland fékk vítaspyrnu á 67. mínútu og Þóra fór á punktinn og skoraði af öryggi með þrumuskoti. Þetta var sjötta mark Íslands í leiknum en liðið er 6-1 yfir þegar þetta er skrifað.

Hin 33 ára gamla Þóra hefur áður skorað tvö mörk í leik í efstu deild hér á landi með KR og Breiðabliki.

Þóra er að leika sinn 108. landsleik í dag en hún hefur ákveðið að hætta að leika með landsliðinu.

Smelltu hér til að sjá textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner