Arsene Wenger, stjóri Arsenal, kom framherjanum Danny Welbeck til varnar eftir 2-0 tap Lundúnaliðsins gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Enski landsliðsmaðurinn fékk þó nokkur færi en tókst ekki að nýta neitt þeirra. Wenger vildi þó ekki gagnrýna þennan fyrrum leikmann Manchester United.
Enski landsliðsmaðurinn fékk þó nokkur færi en tókst ekki að nýta neitt þeirra. Wenger vildi þó ekki gagnrýna þennan fyrrum leikmann Manchester United.
,,Hann var hættulegur en hann var orðinn þreyttur í seinni hálfleik," sagði Wenger við Sky Sports.
,,Hann náði ekki að klára í nótt en hann var líflegur og stóð sig vel. Hann þarf bara að skora mark til að létta á pressunni."
Athugasemdir