Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 17. september 2017 21:44
Elvar Geir Magnússon
Anton Ari um umræðuna: Læt það fara inn um annað og út um hitt
Anton Ari hefur verið frábær í sumar.
Anton Ari hefur verið frábær í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er ólýsanleg, þetta er töluvert betra en að vera bikarmeistari," sagði Anton Ari Einarson markvörður Vals eftir að liðið varð Íslandsmeistari í kvöld með 4-1 sigri á Fjölni heima.

Lestu um leikinn: Valur 4 -  1 Fjölnir

„Það skiptir ekki máli hverjir eru fyrir framan mig, þeir skila alltaf. Alveg frábært," hélt Anton Ari áfram.

Þegar tímabilið hófst voru ákveðnar efasemdar raddir hjá einhverjum um að liðið væri að fara í mótið með Anton Ara. Hann svaraði inni á vellinum og var frábær í sumar.

„Ég heyrði augljóslega af þeirri umræðu, það var ekkert hægt að komast hjá því," sagði Anton Ari.

„Mér finnst langþægilegast að vera sem minnst inni í því hvað er í gangi í fjölmiðlum og blöðum og útvarpsþáttum. Ég læt það fara inn um annað og út um hitt," hélt hann áfram.

„Ég er virkilega sáttur við tímabilið sem er búið að vera framar vonum. Það var frábært að klára þetta heima, það er mjög góð mæting og ég man ekki eftir að hafa spilað við svona stuðning nema í bikarúrslitaleiknum. Þetta munar öllu og hjálpar okkur mjög mikið."
Athugasemdir
banner
banner
banner