Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 17. október 2014 18:30
Magnús Már Einarsson
Aron Elís: Hugsa mig í holunni eða á miðri miðjunni
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Þetta gekk eins og í sögu hjá okkur Víkingum," sagði Aron Elís Þrándarson sem var valinn efnileasti leikmaður Pepsi-deildarinnar í sumar hjá Fótbolta.net.

Aron Elís missti af síðustu leikjum tímabilsins vegna meiðsla en Víkingur náði að landa Evrópusæti þrátt fyrir að vinna ekki leik í september og október.

,,Ég er að verða heill. Þetta gengur voðalega brösulega og hefur tekið sex vikur. Ég vonast til að komast af stað fljótlega," sagði Aron sem meiddist í leik gegn Val.

,,Ég fór framhjá Iain Williamson og hann steig ofan á hásina á mér. Við héldum að þetta væri miklu minna og ég yrði frá í 2-3 vikur en svo kom í ljós að þetta urðu sex og það verður bara að hafa það."

Aron samdi á dögunum við Álasund en hann mun halda til Noregs á sunnudaginn.,,Þetta er virkilega flottur bær og flott lið og ég get ekki beðið eftir að byrja," sagði Aron um Álasund.

Aron var mest framarlega á miðjunni hjá Víkingi í sumar en hann gæti spilað aftar hjá Álasund. ,,Þeir ætla að hugsa mig í holunni eða á miðri miðjunni. Ég er spenntur fyrir öllu. Auðvitað maður helst vera framar en maður gerir bara það sem þjálfarinn segir og verða fjölbreyttari leikmaður."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner