Ben Foster, markvörður West Bromwich Albion, missti af leiknum gegn Leicester City í gær vegna meiðsla.
Tony Pulis, stjóri West Brom, sagði í viðtali að ekkert sé hægt að segja til um alvarleika meiðslana fyrr en niðurstöður fást úr rannsóknum.
Tony Pulis, stjóri West Brom, sagði í viðtali að ekkert sé hægt að segja til um alvarleika meiðslana fyrr en niðurstöður fást úr rannsóknum.
„Það var ekki séns að við værum að fara að taka áhættu með því að láta hann spila í kvöld," sagði Pulis eftir jafnteflið gegn Leicester.
Foster missti af tíu mánuðum þegar hann skaddaði liðband í hné í mars 2015.
„Hann var að spila fótbolta með syni sínum út í garði þegar hann sneri hnéð. Við erum áhyggjufullir vegna þess að þetta er sama hné og síðast."
Athugasemdir