Valsmenn eiga fyrstu tvö félagaskiptin í Pepsi-deild karla þetta haustið. Í gær var gengið frá samningi við Ólaf Karl Finsen og í dag skrifaði Ívar Örn Jónsson undir samning.
„Við erum að senda skýr skilaboð út á markaðinn. Við erum að fjárfesta til lengri tíma. Við ætlum að byggja upp á lið og liðsheild sem dugir næstu árin. Ólafur og Ívar eru góð púsl í þá mynd. Við erum með mjög sterkan hóp fyrir og menn þurfa að hafa sig alla við til að smella inn í okkar liðsheild. Við höfum lengi skoðað þessa tvo og pælt í þeim lengi, þeir munu styrkja okkur," segir Börkur.
Valsmenn ætla ekkert að sofna á verðinum eftir Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
„Fótboltinn er þannig að það sem þú vannst í dag gefur þér ekkert endilega í dag eða á morgun. Við þurfum að hugsa vel um okkur og það erum við að gera. Við ætlum okkur að vera á toppnum um ókomin ár."
Valsmenn eiga sér draum um að vera fyrsta liðið til að komast í riðlakeppni í Evrópu.
„Það styttist í að íslenskt lið brjóti ísinn og komist í riðlakeppni, hvort sem það verður Valur eða annað félag. Evrópukeppnin sem slík gefur félögunum mikla peninga en þetta er lottó og það þarf að varlega og taka ekki of mikla áhættu."
Í viðtalinu hér að ofan talar Börkur nánar um komu Ívars, samkeppnina við Bjarna Ólaf og um frekari tíðindi af Hlíðarenda.
Athugasemdir