Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. október 2017 09:30
Elvar Geir Magnússon
Carragher telur leikmann Man Utd þann besta í heimi
Carragher fer yfir málin í kokteilboði.
Carragher fer yfir málin í kokteilboði.
Mynd: Getty Images
Liverpool goðsögnin Jamie Carragher segir að leikmaður Manchester United sé sá besti í heimi í sinni stöðu.

Carragher var að ræða við Peter Schmeichel í mánudagsþætti sínum þegar umræðan kom að markvörðum.

Rætt var um David de Gea, spænska markvörðinn hjá Manchester United. De Gea átti magnaða markvörslu á laugardaginn gegn Liverpoool.

„Ég tel að hann sé besti markvörður í heimi. Peter er besti markvörður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en De Gea kemur númer tvö," segir Carragher.

„Við höfum haft frábæra markverði eins og David Seaman og Petr Cech en De Gea er í þeim flokki."

Peter Schmeichel, sem er fyrrum markvörður United, tók undir orð Carragher og sagði að markverðir fengju ekki alltaf hrósið sem þeir ættu skilið.

„Við tölum um mörk sem eru skoruð í skeytin og hjólhestaspyrnur. Þessi varsla hjá De Gea gegn Liverpool fer í sama flokk," segir Daninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner