Pep Guardiola var hæstánægður þegar fjölmiðlamenn náðu af honum tali eftir 2-1 sigur á Napoli í Meistaradeildinni í kvöld.
„Þetta var magnaður leikur," sagði Guardiola.
„Þetta var magnaður leikur," sagði Guardiola.
„Bæði lið vildu pressa stíft. Napoli er eitt besta lið sem ég hef mætt á ferlinum. Ef þú ert ekki ákafur án boltans gegn þeim þá ertu ekki að fara að fá neitt út úr leiknum," sagði Guardiola.
Manchester City hefur verið að spila vel í Meistaradeildinni, líkt og á öðrum vígstöðum. City-menn hafa unnið alla sína leiki í Meistaradeildnni hingað til, þeir eru með fullt hús stiga.
„Staðan er þannig að við ætlum að fara í næsta leik og reyna að vinna. Við erum nálægt því (að tryggja okkur áfram í 16-liða úrslit) en það er ekkert staðfest. Við þurfum einn sigur í viðbót."
Athugasemdir