Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 17. október 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heynckes við Nagelsmann: Vertu áfram hjá Hoffenheim
Julian Nagelsmann.
Julian Nagelsmann.
Mynd: Getty Images
Jupp Heynckes, reynsluboltinn mikli, hefur gefið Julian Nagelsmann ráð. Hann ráðleggur Nagelsmann að vera áfram hjá Hoffenheim.

Nagesmann, sem er þrítugur, hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Bayern München að undanförnu.

Hann hefur náð eftirtektarverðum árangri með Hoffenheim.

Carlo Ancelotti var rekinn frá Bayern í síðustu viku og Heynckes tók við. Hann mun stýra Bayern út þetta tímabil, en talað hefur verið um að Nagelsmann muni síðan taka við starfinu.

„Kannski væri það gott fyrir Nagelsmann ef hann verður í nokkur ár hjá Hoffenheim og fá þar reynslu," sagði Heynckes í samtali við Rhein Neckar Zeitung í Þýskalandi í dag.

„Hoffenheim er minna félag og þar getur hann gert mistök."
Athugasemdir
banner
banner
banner