„Frammistaðan í kvöld var til fyrirmyndar, alveg frá fyrstu sekúndu," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool í kvöld. Hann var í mjög góðu skapi eftir 7-0 sigur á Maribor í Meistaradeildinni.
„Við skoruðum stórkostleg mörk og spiluðum stórkostlegan fótbolta. Það leit þannig út að þeir (Maribor) væru ekki góðir en það er erfitt að spila gegn okkur," sagði Klopp.
„Það var frábært að við héldum einbeitingunni í seinni hálfleiknum, við stjórnuðum og þetta var þroskuð frammistaða."
„Þú getur lent í vandræðum í svona leikjum ef þú ert ekki 100%, þetta var mjög þroskað hjá okkar."
Klopp var virkilega ánægður með hápressuna hjá liðinu sínu.
„Hápressan var stórkostleg, ég var næstum því farinn að hoppa af gleði, hún var það góð. Þeir eru með gott fótboltalið, en þeir gátu ekki höndlað pressuna frá okkur í kvöld."
Athugasemdir