Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 17. október 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sveinn Þór áfram þjálfari Dalvíkur/Reynis (Staðfest)
Sveinn Þór er 33 ára gamall og spilaði tvo bikarleiki með Dalvíkingum í sumar.
Sveinn Þór er 33 ára gamall og spilaði tvo bikarleiki með Dalvíkingum í sumar.
Mynd: Dalvík/Reynir
Sveinn Þór Steingrímsson tók við Dalvík/Reyni um mitt sumar eftir að Atli Már Rúnarsson þurfti að segja af sér af heilsufarslegum ástæðum.

Sveinn Þór, sem starfar sem kennari, var aðstoðarþjálfari félagsins þar til hann tók við í júlí og er nú búinn að skrifa undir tveggja ára samning.

Liðið nældi sér í 13 stig í 9 leikjum undir stjórn Sveins Þórs og bjargaði sér örugglega frá falli úr 3. deild.

Svenni á 15 leiki að baki fyrir Grindavík í efstu deild karla á Íslandi og hefur hann spilað í öllum neðri deildunum nema 1. deild.

Honum hefur þó sjaldan tekist að spila yfir 10 leiki á einu tímabili vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner