Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 17. nóvember 2015 07:00
Magnús Már Einarsson
Ari Freyr: Erfitt að missa akkerið af miðjunni
LG
Borgun
Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn í vinstri bakverðinum hjá Íslandi í 4-2 tapinu gegn Póllandi á föstudag.

Ísland leiddi 1-0 í hálfleik þar en síðari hálfleikurinn var ekki jafn góður og lokatölur urðu 4-2.

„Við gerðum nokkrar skiptingar og það var erfitt að missa akkerið af miðjunni, hann er duglegur í hreinsa. Þetta var æfingaleikur en maður þarf líka að reyna að prófa sig áfram," sagði Ari um leikinn gegn Pólverjum.

Ari verður líka í eldlínunni gegn Slóvökum í kvöld. „Ég þekki bara einhverja nokkra gaura en þeir virðast vera þokkalegir á þessum myndböndum sem ég hef séð. Þeir eru með góða sóknarmenn og þéttir varnarlega svo þetta verður örugglega svipaður leikur."

Nokkrir nýliðar eru í íslenska hópnum að þessu sinni. „Þeir hafa komið vel inn í þetta hingað til. Það var skemmtilegt fyrir Arnór (Ingva Traustason) að fá heilan leik og það verður gaman að sjá hvað hinir fá í næsta leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner