Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. nóvember 2017 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
John Stones: Ekki hægt að verða neitt nema betri
Mynd: Getty Images
John Stones var keyptur til Manchester City í ágúst í fyrra fyrir rétt tæpar 50 milljónir punda.

Stones, sem er 23 ára miðvörður, var gagnrýndur fyrir slakar frammistöður á sínu fyrsta tímabili með félaginu en hefur byrjað 11 deildarleiki undir stjórn Pep Guardiola og staðið sig með sóma.

Þá er Stones búinn að næla sér í byrjunarliðssæti með enska landsliðinu og var hann sem klettur í hjarta varnarinnar í markalausum æfingaleikjum gegn Þýskalandi og Brasilíu í landsleikjahlénu.

„Ég tel frammistöðu mína á tímabilinu segja meira en þúsund orð. Ég er duglegur að gagnrýna sjálfan mig, ég er fyrstur til að viðurkenna mistök og ég legg mikið á mig til að læra af þeim," sagði Stones við fréttamenn.

„Ef maður er heiðarlegur við sjálfan sig og hefur metnað fyrir að læra af mistökum þá er ekki hægt að verða neitt nema betri.

„Knattspyrna er aldrei auðveld og ég geri mitt besta til að hjálpa ungum leikmönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref."

Athugasemdir
banner
banner