„Hann er góð viðbót við leikmannahópinn sem við erum með. Þetta er grjótharður gæi sem getur spilað 2-3 stöður," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir að Dagur Austmann Hilmarsson samdi við félagið í dag.
Kristján er í leit að frekari liðsstyrk og Eyjamenn gætu styrkt sig á næstunni.
„Við erum að taka inn sterka útlendinga og við erum að reyna að fá leikmenn sem hafa reynslu af Pepsi-deildinni til okkar," sagði Kristján.
Máni Austmann, tvíburabróðir Dags, er í Stjörnunni. Var möguleiki á að fá hann líka til Eyja? „Við sjáum bara til. Kannski kemur hann svo oft í heimsókn til Eyja að við smyglum honum inn á æfingu," sagði Kristján léttur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir