Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. nóvember 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo vill sjö börn og sjö gullbolta
Ronaldo á fjögur börn og fjóra gullbolta.
Ronaldo á fjögur börn og fjóra gullbolta.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo segist vilja eignast sjö börn og ná sjö sinnum að vinna gullboltann sem besti leikmaður í heimi áður en ferlinum lýkur.

Ronaldo varð faðir í fjórða skipti í vikunni þegar kærasta hans Georgina Rodriguez fæddi dóttur í Madrid. Ronaldo þykir einnig líklegur til að vinna gullboltann í fimmta skipti þegar verðlaunin verða afhent í næsta mánuði.

„Ég hef ekki áhyggjur af því ennþá. Ég er 32 ára og næstum 33 ára. Heimur minn snýst ekki bara um fótbolta. Það eru aðrir mikilvægir hlutir," sagði Ronaldo aðspurður út í gullboltann.

„Varðandi gullboltann þá er ég ennþá vongóður um að vinna. Ég veit að kosning stendur ennþá yfir en ég er vongóður og hef ekki áhyggjur."

„Ég vil eignast sjö börn og jafnmarga gullbolta. Svo lengi sem ég er að spila þá vil ég vinna allt. Draumur minn er að ná fimmta gullboltanum. Á næsta ári eru síðan önnur verðlaun í boði."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner