Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. nóvember 2017 21:37
Helgi Fannar Sigurðsson
Þýskaland: Stuttgart með góðan sigur á Dortmund
Leikmenn Stuttgart gátu fagnað í kvöld.
Leikmenn Stuttgart gátu fagnað í kvöld.
Mynd: Getty Images
Stuttgart 2-1 Dortmund
1-0 Chadrac Akolo (5')
1-1 Maximilian Philipp (45+3')
2-1 Josip Brekalo (51')

Stuttgart vann óvæntan sigur á Borussia Dortmund í þýsku Bundesligunni í kvöld.

Chadrac Akolo kom Stuttgart yfir snemma leiks en Maximilian Philipp jafnaði fyrir Dortmund í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Josip Brekalo kom inn á í hálfleik og hann skoraði sigurmark Stuttgart eftir aðeins sex mínútur á vellinum.

Stuttgart hoppar upp í 11.sæti með sigrinum en Dortmund situr í 3.sæti. Dortmund er aðeins með einn sigur úr síðustu átta leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner