Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. nóvember 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Alfreð fer á Allianz
Mynd: Getty Images
Það er afar spennandi helgi framundan í þýska boltanum þar sem toppliðin eiga öll spennandi leiki.

Fjörið byrjar strax í kvöld þegar Stuttgart tekur á móti Borussia Dortmund, sem mætir til leiks án Pierre-Emerick Aubameyang sem er í agabanni.

Dortmund er í þriðja sæti, sex stigum frá toppnum, og hefur ekki unnið deildarleik síðan 30. september.

Á morgun mætir Alfreð FInnbogason til leiks með Augsburg þegar liðið heimsækir topplið Bayern.

Óljóst er hvort Alfreð byrji leikinn, en hann er búinn að gera fimm mörk á tímabilinu og leggja eitt upp. Alfreð er með mikla samkeppni um stöðuna sína og sat 90 mínútur á bekknum í síðustu umferð.

Red Bull Leipzig er í öðru sæti og mætir Bayer Leverkusen. Hoffenheim tekur þá á móti Eintracht Frankfurt í spennandi leik og Wolfsburg mætir Freiburg, áður en Hertha Berlin lokar deginum á heimavelli gegn Borussia Mönchengladbach.

Á sunnudaginn á Schalke leik við fallbaráttulið Hamburger SV og sigurlaust lið Werder Bremen tekur á móti Hannover í síðasta leik helgarinnar.

Föstudagur:
19:30 Stuttgart - Borussia Dortmund (Stöð 2 Sport 2)

Laugardagur:
14:30 Bayern München - Augsburg (Stöð 2 Sport 2)
14:30 Bayer Leverkusen - RB Leipzig
14:30 Mainz - Köln
14:30 Hoffenheim - Frankfurt
14:30 Wolfsburg - Freiburg
17:30 Hertha Berlin - B. M'Gladbach

Sunnudagur:
14:30 Schalke - Hamburger SV
17:00 Werder Bremen - Hannover
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner
banner